28.11.2011 17:27
Við bræður vorum í heilsubótargöngu í Björnslundi um helgina þar sem við hittum um 90 börn af leikskólanum Rauðhól en þau voru að leita sér að jólatré sem á að prýða þeirra leikskóla.
Þessi skemmtilega mynd var víst tekin af okkur þar sem við erum að kanna hvort börnin hafi verið þæg í ár en það stendur einmitt í Töfrabókinni okkar góðu.